Igor Thiago skráði sig á spjöld sögunnar í dag þegar hann var valinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Hann varð með því fyrsti Brasilíumaðurinn til að fá nafnbótina oftar en einu sinni.
Hann var líka útnefndur sá besti í nóvember. Hann skoraði fimm mörk í síðasta mánuði og Brentford er áfram í baráttunni um Evrópusæti.
Thiago skrifaði undir nýjan fimm ára samning við Brentford í morgun og er í baráttunni við Erling Haaland um markakóngstitilinn.
Yasin Ayari, Patrick Dorgu, Enzo Fernandez, Junior Kroupi, Crysencio Summerville, Harry Wilson og Florian Wirtz voru einnig tilnefndir.

Michael Carrick, bráðabirgðastjóri Manchester United, var þá valinn stjóri mánaðarins. Carrick tók við liði United um miðjan janúar og vann sigra gegn Arsenal og Manchester City í leikjunum sem stjóri liðsins.
Carrick er einungis einn af sjö bráðabirgðastjórum til að fá þessa nafnbót. Ole Gunnar Solskjær fékk hana í janúar 2019 eftir frábæra byrjun sem stjóri United eftir að hafa tekið við af Jose Mourinho til bráðabirgða.
Carrick er fyrsti Englendingurinn til að fá þessa nafnbót frá því í apríl 2024 en þá fékk Sean Dyche hana en hann var þá stjóri Everton.
Sean Dyche, Andoni Iraola og Liam Rosenior voru hinir stjórarnir sem komu til greina sem stjóri mánaðarins í janúar.
??????????
— Wayne Rooney (@WayneRooney) February 13, 2026
Athugasemdir