Fotbolti.net
13.02.26 - 12:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Damir tekur við 4. flokki Hauka

Damir tekur við 4. flokki Hauka
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Landsliðsmaðurinn Damir Muminovic er orðinn einn af aðalþjálfurum 4. flokks Hauka. Damir er leikmaður Grindavíkur, samdi við félagið á síðasta ári eftir að ljóst varð að hann yrði ekki áfram hjá Breiðabliki. Damir hefur spilað sex landsleiki og gæti bætt þeim sjöunda gegn Mexíkó seinna í þessum mánuði.

Í tilkynningu Hauka kemur fram að Damir hafi menntað sig í þjálfunarfræðunum undanfarin ár og næst á dagskrá sé A-þjálfaragráðan.

Grindavík hefur fengið að nýta æfingaaðstöðu Hauka í vetur.
Tilkynning Hauka
Damir Muminovic hefur verið ráðinn sem einn af aðalþjálfurum 4. flokks drengja.

Damir er einn reyndasti leikmaður íslenskrar knattspyrnu og hefur spilað í meistaraflokki karla í tæp 20 ár, lengst af í efstu deild karla með Breiðablik hvar hann vann til fjölmargra titla. Á síðasta ári var Damir um tíma á mála hjá DPMM FC hvar hann lék 20 leiki. Damir á fjölda Evrópuleikja að baki og einnig leiki með A landsliði karla og er einmitt í hópnum sem mætir Mexíkó síðar í mánuðinum.

Damir hefur menntað sig í þjálfunarfræðunum undanfarin ár og mun næst klára KSÍ A þjálfaragráðuna.
Damir tekur formlega til starfa eftir landsleikinn við Mexíkó.

Það er gríðarlegur fengur í því að fá Damir Muminovic til starfa. Reynsla hans, þekking og gríðarlegur metnaður mun nýtast drengjunum í 4.flokki og öllu starfi knattspyrnudeildar Hauka vel og hlökkum við mikið til samstarfsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.