Fotbolti.net
13.02.26 - 21:40
Ívan Guðjón Baldursson

Enski bikarinn: Pedro Neto með þrennu - Wrexham áfram

Enski bikarinn: Pedro Neto með þrennu - Wrexham áfram
Canon

Mynd: EPA

Chelsea er komið áfram í 16-liða úrslit FA bikarsins þar sem Pedro Neto gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu á útivelli gegn Championship-liði Hull City.
Chelsea var talsvert sterkari aðilinn frá upphafi til enda og klúðruðu Estevao og Liam Delap ótrúlegum dauðafærum áður en fyrsta markið leit dagsins ljós. Neto skoraði það með hnitmiðuðu skoti úr D-boganum.

Hull sýndi fína takta en staðan var 0-1 í hálfleik og tókst Chelsea að skora þrjú mörk í síðari hálfleik þrátt fyrir að skapa sér ekki mikið af færum. Neto skoraði fyrst beint úr hornspyrnu áður en Estevao kláraði vel eftir frábæran undirbúning frá Liam Delap.

Neto fullkomnaði svo þrennuna sína eftir aðra stoðsendingu frá Delap eftir gott þríhyrningsspil á 71. mínútu. Lokatölur 0-4.

Á sama tíma hafði Wrexham betur gegn Ipswich Town þökk sé marki frá Josh Windass.

Windass skoraði í fyrri hálfleik þegar Wrexham var sterkari aðilinn en gestirnir frá Ipswich komust nálægt því að gera jöfnunarmark eftir leikhlé, en þeirra hættulegasta marktilraun rataði ekki á rammann.

Hull City 0 - 4 Chelsea
0-1 Pedro Neto ('40 )
0-2 Pedro Neto ('51 )
0-3 Estevao ('59 )
0-4 Pedro Neto ('71 )

Wrexham 1 - 0 Ipswich
1-0 Josh Windass ('34 )
Enski bikarinn: Pedro Neto með þrennu - Wrexham áfram
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.