Fotbolti.net
13.02.26 - 10:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sá næstmarkahæsti í úrvalsdeildinni gerir langan samning við Brentford

Sá næstmarkahæsti í úrvalsdeildinni gerir langan samning við Brentford
Canon

Mynd: EPA

Igor Thiago hefur skrifað undir nýjan fimm og hálfs árs samning við Brentford og er möguleiki á eins árs framlengingu á þeim samningi.

Brasilíski framherjinn hefur sprungið út á þessu tímabili og hefur skorað 18 mörk í 27 leikjum í öllum keppnum, þar af eru 17 í úrvalsdeildinni. Einungis Erling Braut Haaland hefur skorað fleiri.
Thiago er nú samningsbundinn Brentford til sumarsins 2031.

„Ég elska félagið og fólkið í félaginu," segir Thiago sem kom frá Club Brugge til Brentford í febrúar 2024.

„Þetta er sönn ást, alvöru ást. Þegar stuðningsmenn styðja við mig, og ég sé þá syngja nafnið mitt og lagið mitt, það gefur mér meiri kraft. Þetta hefur verið mjög gott tímabil fyrir okkur. Allir hafa verið á sömu blaðsíðu. Ég vona að við getum gert eitthvað sérstakt úr því," sagði Thiago við undirskrift.

Hann glímdi við erfið meiðsli á fyrsta tímabilinu hjá Brentford og missti alls af 35 leikjum vegna meiðslanna.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.