Fotbolti.net
13.02.26 - 09:30
Elvar Geir Magnússon

Þjálfari Norður-Íra verður stjóri Andra Lucasar (Staðfest)

Þjálfari Norður-Íra verður stjóri Andra Lucasar (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Michael O'Neill er að taka við sem stjóri Blackburn Rovers en landsliðssóknarmaðurinn Andri Lucas Guðjohnsen spilar með liðinu í Championship-deildinni.

O'Neill er landsliðsþjálfari Norður-Írlands og stýrir liðinu í umspilinu í mars. Liðið mætir Ítalíu í undanúrslitum og ef það vinnur leikur það gegn Wales eða Bosníu um sæti á HM. Taldar eru litlar líkur á að Norður-Írar komist á HM en ef það tekst mun hann stýra liðinu á mótinu.
Damien Johnson, sem er bráðabirgðastjóri Blackburn, mun stýra liðinu samhliða O'Neill út tímabilið en í sumar er búist við því að O'Neill taki einn við og láti af störfum hjá Norður-Írlandi.

Verið er að ganga frá samkomulagi við fótboltasamband Norður-Írlands en mögulega verður O'Neill með stjórnartaumana gegn Queens Park Rangers á laugardag.

Blackburn er í fallbaráttu í Championship, situr í 22. sæti. Valerien Ismael lét af störfum sem stjóri þann 2. febrúar.

Uppfært 13:00: Blackburn hefur staðfest ráðninguna.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough12+1025
2Swansea12+323
3West Ham12+1722
4Wolves12+421
5West Brom12+321
6Southampton12+1220
7Birmingham12+820
8QPR12+820
9Stoke City12+220
10Blackburn12+318
11Portsmouth12+118
12Sheffield Utd12+116
13Millwall12-115
14Bristol City12-315
15Lincoln City12-715
16Cardiff City12+214
17Wrexham12-314
18Bolton12-714
19Charlton Athletic12-714
20Norwich12-212
21Watford12-1011
22Burnley12-88
23Derby County12-117
24Preston NE12-155
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.