Fotbolti.net
13.02.26 - 13:02
Elvar Geir Magnússon

Tottenham ætlar að ráða bráðabirgðastjóra

Tekur Mauricio Pochettino við Tottenham í sumar?

Tekur Mauricio Pochettino við Tottenham í sumar?

Canon

Mynd: EPA

Tottenham hyggst ráða bráðabirgðastjóra út tímabilið áður en nýr stjóri verður ráðinn til frambúðar í sumar.

Thomas Frank var rekinn í vikunni en Tottenham er fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Samkvæmt heimildum BBC þá stefnir Tottenham að því að vera kominn með bráðabirgðastjóra áður en leikmenn mæta næst til æfinga á mánudaginn.

Tottenham er ekki lengur með í bikarnum og næsti leikur er gegn Arsenal 22. febrúar. Leikmenn eru því í fríi þessa dagana.

Margir stuðningsmenn Tottenham eiga þann draum að Mauricio Pochettino taki aftur við liðinu en samningur hans sem landsliðsþjálfari Bandaríkjanna rennur út í sumar. Roberto De Zerbi er annar kostur en hann yfirgaf Marseille á dögunum.

Hver gæti orðið bráðabirgðastjóri?
Igor Tudor fyrrum stjóri Juventus, Marco Rose fyrrum stjóri Leipzig og Edin Terzic fyrrum stjóri Borussia Dortmund eru sagðir á blaði Tottenham samkvæmt Daily Mail. Tottenham er sagt vilja fá mann með reynslu í ljósi þess að liðið er í fallbaráttu.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.