Fotbolti.net
13.02.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Tudor ætlar að endursanna sig - Einbeitir sér að varnarleiknum

Igor Tudor.

Igor Tudor.

Canon

Mynd: EPA

Fyrsti leikur Króatans Igor Tudor með stjórnartaumana hjá Tottenham verður Norður-Lundúnaslagurinn gegn Arsenal þann 22. nóvember.

Beðið er eftir að Tottenham staðfesti ráðningu á Tudor sem bráðabirgðastjóra út tímabilið en hann mun stýra sinni fyrstu æfingu á mánudaginn.

Talið er líklegt að Tottenham sé með það markmið að geta fengið Mauricio Pochettino til að taka við í sumar, þegar hann hefur lokið við stýra bandaríska landsliðinu á HM.
Igor Tudor að taka við Tottenham
TENGT EFNI

Igor Tudor að taka við Tottenham

Sjö mánaða stjórnartíð Tudor hjá Juventus lauk í október eftir átta leiki í röð án sigurs. Hann hefur verið í tólf störfum á ellefu árum.

„Tudor lítur á þetta sem tækifæri til að endurrétta ímynd sína við eftir erfiða byrjun á tímabilinu hjá Juventus. Hann var upphaflega ráðinn þangað tímabundið en fékk starfið eftir að hafa komið liðinu í Meistaradeildina," segir Patrick Kendrick, sérfræðingur í ítalska boltanum.

Hrifinn af þriggja miðvarða kerfi
En við hverju má búast hjá Tottenham?

„Ég býst við því að hann muni fyrst og fremst einbeita sér að því að Tottenham fái ekki of mörg mörk á sig. Ég veit að þetta er eitthvað sem stuðningsmenn vilja líklega ekki heyra því ímynd félagsins tengist sóknarbolta," segir Kendrick.

„Hann er hrifinn af þriggja miðvarða kerfi og passar upp á að lið fái ekki of mörg færi á sig. Ég held að hann muni spila 3-4-2-1 en hann gæti spilað annað kerfi ef hann telur það henta hópnum."
Tudor ætlar að endursanna sig - Einbeitir sér að varnarleiknum
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.