Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   fös 13. mars 2026 20:02
Ívan Guðjón Baldursson
Ánægður með fyrstu þrennuna: Besti leikur ferilsins
Mynd: EPA
Federico Valverde bar fyrirliðaband Real Madrid og skoraði þrennu í fræknum sigri gegn Manchester City í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í vikunni.

Það var fyrsta þrennan á ferli Valverde sem er ótrúlega fjölhæfur leikmaður, mögulega sá fjölhæfasti í heimi í hæsta gæðaflokki.

Til eru góð dæmi um leikmenn sem eru bæði öflugir á miðjunni og sem bakverðir, þar sem má helst nefna Dominik Szoboszlai, Reece James og Trent Alexander-Arnold, en Valverde getur leyst enn fleiri stöður af hólmi.

Auk þess að vera mjög öflugur sem hægri bakvörður er Valverde einnig frábær kantmaður, ásamt því að vera framúrskarandi bæði framarlega og aftarlega á miðjunni. Hann hefur komið með beinum hætti að 18 mörkum í 39 leikjum á yfirstandandi tímabili þrátt fyrir að spila sem bakvörður í rétt tæplega helming leikjanna.

„Valverde er allt það sem leikmaður Real Madrid ætti að vera," sagði Árvalo Arbeloa bráðabirgðaþjálfari Real Madrid meðal annars eftir sigurinn á miðvikudagskvöldið.

Pep Guardiola, þjálfari City, hrósaði leikmanninum einnig í hástert að leikslokum og það gerði Trent Alexander-Arnold líka.

„Fede Valverde er stórkostlegur leikmaður. Ég veit ekki hversu margar stöður á vellinum hann getur spilað, hann er ótrúlegur."

Valverde sjálfur var augljóslega í sjöunda himni eftir lokaflautið.

„Þetta er ótrulegt, þetta er kvöld sem fólki dreymir um að fá að upplifa. Þetta var besti leikur ferilsins hjá mér, sérstaklega þegar kemur að markaskorun. Það er langt síðan mér leið svona vel inni á vellinum. Mig hefur alltaf dreymt um að eiga svona kvöld og ég er mjög stoltur af sjálfum mér, bæði með ferilinn og hvernig manneskja ég er að verða með aldrinum. Þetta er saga sem ég mun segja við börnin og barnabörnin."

   12.03.2026 09:00
Trent: Fólk bjóst við að okkur yrði slátrað

Athugasemdir
banner
banner