Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   fös 13. mars 2026 21:32
Ívan Guðjón Baldursson
Ísak á skotskónum - Ingibjörg í sigurliði
Mynd: Lyngby
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísak Snær Þorvaldsson var í byrjunarliðinu og skoraði eitt markanna í þægilegum sigri Lyngby á Middelfart í næstefstu deild í Danmörku.

Ísak Snær skoraði þriðja mark sinna manna snemma í síðari hálfleik og urðu lokatölur 4-1. Lyngby trónir á toppi deildarinnar með sex stiga forystu á næstu lið sem eiga þó leik til góða.

Í efstu deild í Danmörku var Daníel Freyr Kristjánsson í byrjunarliðinu hjá Fredericia sem steinlá gegn Randers á heimavelli. Daníel Freyr spilaði fyrri hálfleikinn í 0-3 tapi, en staðan var 0-2 í leikhlé.

Liðin mættust í fyrstu umferð eftir tvískiptingu og er Fredericia fimm stigum frá fallsæti.

Brynjar Ingi Bjarnason fékk þá að spila síðustu mínúturnar í afar dýrmætum sigri Greuther Fürth í næstefstu deild þýska boltans. Greuther var í botnsæti deildarinnar fyrir tæpum mánuði síðan en er núna þremur stigum frá fallsvæðinu eftir að hafa nælt sér í 10 stig úr síðustu 4 umferðum.

Í Hollandi kom Brynjólfur Andersen Willumsson inn af bekknum á 80. mínútu í jafntefli hjá Groningen á útivelli gegn PEC Zwolle. Groningen er aðeins tveimur stigum frá baráttunni um sæti í Sambandsdeildinni.

Helgi Fróði Ingason var þá í byrjunarliði Helmond í næstefstu deild. Hann fékk að spila fyrstu 56 mínúturnar í tapi gegn varaliði Utrecht, en staðan var markalaus þegar Helga var skipt af velli. Helmond siglir lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar.

Sigurður Bjartur Hallsson spilaði fyrstu klukkustundina í stóru tapi hjá AD Mérida í fjórðu efstu deild á Spáni. Tapið er óvænt gegn fallbaráttuliði og kemur sér illa fyrir vonir Mérida í umspilsbaráttunni.

Í kvennaboltanum lék Ingibjörg Sigurðardóttir allan tímann er Freiburg lagði Nürnberg að velli í efstu deild þýska boltans.

Freiburg er aðeins þremur stigum frá meistaradeildarsæti en næstu lið í kring eiga ýmist einn, tvo eða þrjá leiki til góða.

Lyngby 4 - 1 Middelfart
1-0 R. Tytens ('14)
2-0 Dani ('29)
2-1 M. Boesen ('39)
3-1 Ísak Snær Þorvaldsson ('55)
4-1 A. Bondergaard ('67)

Greuther Furth 2 - 0 Elversberg

PEC Zwolle 1 - 1 Groningen

Jong Utrecht 1 - 0 Helmond

Merida 1 - 4 Guadalajara

Odd 2 - 0 Moss

Freiburg 2 - 1 Nurnberg

Athugasemdir
banner