Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   fös 13. mars 2026 22:08
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Sá næstdýrasti í sögu Arsenal bjargaði stigi
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Alavés 1 - 1 Villarreal
1-0 Rafa Marin ('40, sjálfsmark)
1-1 Nicolas Pepe ('98)

Fallbaráttulið Deportivo Alavés fékk meistaradeildarbaráttulið Villarreal í heimsókn í fyrsta leik helgarinnar í efstu deild spænska boltans og náðu heimamenn forystunni undir lok fyrri hálfleiks.

Rafa Marín varð þá fyrir því óláni að skora sjálfsmark með skalla eftir magnaðan undirbúning frá Toni Martínez, sem var í afar erfiðri stöðu en náði að koma boltanum fyrir markið með fastri hælsendingu.

Alavés skoraði því eina markið í fyrri hálfleiknum án þess að eiga eina einustu marktilraun sem hæfði rammann.

Síðari hálfleikurinn var áfram afar tíðindalítill og fékk Villarreal að halda boltanum eftir að Alavés var talsvert meira með hann í fyrri hálfleiknum.

Það var lítið um marktækifæri en kantmaðurinn Nicolas Pépé var í byrjunarliði Villarreal og var ennþá með kraft í löppunum seint í uppbótartíma.

Dómari leiksins bætti níu mínútum við venjulegan leiktíma og eftir tæpar átta mínútur fékk Pépé boltann í vænlegri stöðu í vítateig Alavés.

Þessi fyrrum dýrasti leikmaður í sögu Arsenal fór afar fimlega framhjá varnarmanni Alavés til að búa sér til skotpláss og náði að skrúfa boltann í vinkilinn með fullkomnu skoti.

Pépé bjargaði þannig stigi fyrir Villarreal, sem siglir lygnan sjó í þriðja sæti La Liga. Villarreal gæti misst þriðja sætið til Atlético Madrid, en meistaradeildarsætið er svo gott sem öruggt.

Alavés er tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Athugasemdir
banner