Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   fös 13. mars 2026 17:41
Ívan Guðjón Baldursson
Vill sjá Maguire á HM: Efast enginn um gæðin í Jadon
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Michael Carrick var hress á fréttamannafundi Manchester United í dag og svaraði spurningum úr öllum áttum.

Hann tjáði sig meðal annars um Harry Maguire, Morgan Rogers og Jadon Sancho á fundinum.

„Harry kemur klárlega til greina fyrir enska landsliðið og frá mínu sjónarhorni þá vona ég að hann verði valinn," svaraði Carrick þegar hann var spurður út í HM-vonir Maguire.

Maguire er 33 ára gamall og hefur verið lykilmaður í varnarleik Rauðu djöflanna frá því að Carrick tók við sem bráðabirgðaþjálfari.

Man Utd tekur á móti Aston Villa í mikilvægum slag í meistaradeildarbaráttunni á sunnudag. Búast má við að Morgan Rogers og Jadon Sancho komi báðir við sögu í leiknum.

Carrick þekkir vel til Rogers eftir að hafa þjálfað hann hjá Middlesbrough tímabilið 2023-24 og einnig til Sancho eftir að hafa verið partur af þjálfarateymi United og stýrt aðalliðinu í þrjá leiki veturinn 2021, áður en Ralf Rangnick var ráðinn.

„Það er stórkostlegt að sjá Morgan Rogers gera svona góða hluti. Hann er að taka risastór skref, hann er lykilmaður hjá Aston Villa auk þess að vera orðinn partur af enska landsliðinu. Hann er mjög gæðamikill fótboltamaður og frábær einstaklingur.

„Þegar kemur að Jadon þá efast enginn um gæðin sem hann býr yfir. Liðið og leikstíllinn þarf að passa við hann."


   15.02.2026 10:00
Býst við meiru frá Sancho

Athugasemdir
banner
banner