Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   mán 13. apríl 2026 09:30
Kári Snorrason
Arnar fer í myndatöku í dag - „Þurfum að skoða í kringum okkur“
Óskar segir meiðslin ekki líta vel út.
Óskar segir meiðslin ekki líta vel út.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar Hrafn Þorvaldsson.
Óskar Hrafn Þorvaldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, neyddist til að yfirgefa völlinn eftir um tíu mínútna leik í viðureign KR og Keflavíkur í gær vegna meiðsla. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, sagði í viðtali eftir leik að um væri að ræða meiðsli við hnésbót og að útlitið væri ekki bjart.

Arnar hefur átt við töluverð meiðslavandræði að stríða undanfarin ár. Hann sleit hásin fyrir tveimur árum og var frá í um átta mánuði. Hann tognaði jafnframt í kálfa á fyrri hluta síðasta tímabils.

„Ég veit það ekki, en þetta lítur ekki vel út. Hann fer vonandi í myndatöku á morgun. Þetta er eitthvað við hnésbótina eða þar um slóðir. Ég ætla ekki að vera með neina dómsdagsspá. Þetta lítur ekki vel út en vonandi leiðir myndatakan eitthvað gott í ljós. En þetta lítur ekki vel út,“ sagði Óskar Hrafn eftir leik í gær.

Þurfa að skoða í kringum sig
Halldór Snær Georgsson kom inn í stað Arnars í gær. Hann var aðalmarkvörður KR á síðasta tímabili en Arnar hafði slegið hann út úr markinu fyrir nýhafið tímabil.

„Við búum svo vel að að hafa Dóra að berjast við hann. Þetta er mikill missir. Við erum með tvo markmenn og annar er farinn. Við erum með ungan mann sem þriðja markmann þannig við þurfum aðeins að fara skoða í kringum okkur. Við erum ekki með risastóran hóp, það er slæmt að missa Arnar af æfingasvæðinu. Frábær æfingamaður, karakter og liðsfélagi.“

„Við þurfum að skoða í kringum okkur, ég veit ekki hvað við gerum þá þurfum við að skoða í kringum okkur, ég held að það sé alveg ljóst,“ sagði Óskar að lokum.

Óskar Hrafn: Svona frammistaða í fyrra hefði skilað okkur 4-3 tapi
Slapp
banner