Fotbolti.net
13.05.15 - 14:56
Magnús Már Einarsson

Björgólfur Takefusa í Þrótt (Staðfest)

Björgólfur í leik með Þrótti í fyrra.

Björgólfur í leik með Þrótti í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Björgólfur Takefusa hefur gengið til liðs við Þrótt en hann fékk leikheimild með liðinu í dag.

Björgólfur er uppalinn Þróttari en hann var á láni hjá félaginu frá Fram síðari hluta tímabils í fyrra.

Þá skoraði hinn 35 ára gamli Björgólfur þrjú mörk í níu leikjum með Þrótti.
Björgólfur hefur samtals skorað 116 mörk í 262 leikjum á ferlinum en hann hefur einnig leikið með KR, Val, Fylki og Víkingi.

Í vetur hefur Björgólfur ekki spilað neitt en hann er kominn með leikheimild fyrir leik Þróttar gegn BÍ/Bolungarvík á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.