13.05.15 - 11:36
Magnús Már Einarsson
Gunnar Örvar í Þór (Staðfest)

Gunnar spilaði síðast í Noregi.

Mynd: Spjelkavik

Gunnar spilaði síðast í Noregi.

Mynd: Spjelkavik
Þór hefur fengið framherjann Gunnar Örvar Stefánsson í sínar raðir en þetta staðfesti Halldór Jón Sigurðsson þjálfari liðsins í samtali við Fótbolta.net í dag.
Gunnar Örvar er stór og stæðilegur leikmaður en hann er uppalinn hjá KA. Í fyrra skoraði þessi 21 árs gamli leikmaður þrjú mörk í 14 leikjum í 1. deildinni með KA.
Gunnar fór síðastliðið haust til Spjelkavík í norsku C-deildinni. Hann er nú kominn aftur til Íslands og mun taka slaginn með Þór í 1. deildinni í sumar.
Þórsarar töpuðu 4-1 gegn Þrótti í fyrstu umferðinni í 1. deild um síðustu helgi. Liðið fær Fram í heimsókn á Þórsvöll í næsta leik á laugardag.