Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 13. maí 2021 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Conte og Lautaro leystu ágreining sinn með því að boxa
Conte lætur dómara heyra það.
Conte lætur dómara heyra það.
Mynd: Getty Images
Inter hefur átt mjög gott tímabil. Liðið er búið að vinna Ítalíumeistaratitilinn þó það séu tvær umferðir eftir; þeirra fyrsti deildartitill í 11 ár.

Þrátt fyrir að titillinn sé í höfn þá eru enn tilfinningar í spilinu og það sást þegar Lautaro Martínez var tekinn af velli í 3-1 sigrinum á Roma í gær.

Martínez fór af velli á 77. mínútu og var verulega pirraður út í þjálfara sinn, Antonio Conte.

Þeir ákváðu að leysa ágreining sinn skemmtilega á æfingasvæðinu í dag. Þeir settu á sig boxhanska og slógu á létta strengi. Romelu Lukaku kynnti menn í hringinn og það var mikið glens. Conte er þekktur fyrir að vera harðhaus en hann brosti meira að segja og hafði gaman að.

Hér að neðan má sjá myndband af þessu.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner