Fotbolti.net
13.06.15 - 07:00
Arnar Geir Halldórsson

Andre Breitenreiter tekur við Schalke (Staðfest)

Nýr stjóri Schalke 04

Nýr stjóri Schalke 04

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Þýska stórliðið, Schalke 04, hefur fundið arftaka Roberto Di Matteo sem lét af störfum eftir tímabilið.
Nýr knattspyrnustjóri Schalke 04 heitir Andre Breitenreiter en hann stýrði síðast liði Paderborn sem fell úr Bundesligunni á nýafstaðinni leiktíð.

Breitenreiter sem er 41 árs Þjóðverji lék meðal annars fyrir Hannover 96, Hamburg og Wolfsburg á leikmannaferli sínum en hans helsta afrek á þjálfaraferlinum er þegar hann kom Paderborn í Bundesliguna en það var í fyrsta skipti í sögu félagsins sem það komst í efstu deild.

Breitenreiter gerði tveggja ára samning við Schalke í gær.

Schalke lenti í 6.sæti á síðustu leiktíð og spilar því í Evrópudeildinni á næstu leiktíð en liðið fell úr 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í eftirminnilegu einvígi gegn Real Madrid.

Heimild: Schalke 04

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.