Fotbolti.net
13.06.15 - 09:30
Arnar Geir Halldórsson

Fyrrum vonarstjarna Arsenal til QPR (Staðfest)

Jay Emmanuel-Thomas

Jay Emmanuel-Thomas

Canon

Mynd: Getty Images

QPR hefur gert þriggja ára samning við enska framherjann Jay Emmanuel-Thomas en hann kemur til liðsins frá Bristol City.
Thomas þótti á sínum tíma einn efnilegasti leikmaður Englands en hann ólst upp hjá Arsenal frá átta ára aldri. Hann lék sinn fyrsta, og reyndar eina, aðalliðsleik fyrir Arsenal 20 ára gamall.

Hann hjálpaði Bristol City að komast upp úr C-deildinni á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 12 mörk en mun nú leika gegn Bristol í Championship deildinni þar sem QPR mun spila í þeirri deild á næsta tímabili.

Chris Ramsey, stjóri QPR, bindur miklar vonir við nýjasta liðsmann sinn.

„Ég hef lengi hrifist af honum og ég er í skýjunum með að við höfum náð samningum við hann. Það var mikið látið með hann hjá Arsenal á sínum tíma og þó hann hafi átt ágætis feril er þetta tækifæri fyrir hann til að koma ferli sínum á enn hærri stig”, sagði Ramsey.

Emmanuel-Thomas er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir QPR í sumar en áður höfðu þeir Massimo Luongo og Ben Gladwin skrifað undir samning við Lundúnarliðið. Margir leikmenn hafa yfirgefið félagið og ljóst að enduruppbygging er að hefjast á Loftus Road.

Heimild: QPR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.