Fotbolti.net
13.06.15 - 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Iago Aspas til Celta Vigo (Staðfest)

Aspas mun snúa aftur í búning Celta

Aspas mun snúa aftur í búning Celta

Canon

Mynd: Getty Images

Celta Vigo eru búnir að ná samkomulagi við Sevilla um kaup á framherjanum Iago Aspas.

Aspas þekkir vel til hjá Celta, en þar steig hann sín fyrstu skref í fótbolta áður en hann skipti yfir til Liverpool árið 2013.
Hann stóð ekki undir væntingum hjá Liverpool og var seldur til Sevilla síðasta sumar.

Hann fékk hins vegar ekki mikið að spreyta sig hjá Sevilla, þar sem að þar voru fyrir Carlos Bacca og Kevin Gameiro.

Aspas mun núna snúa aftur til uppeldisfélagsins og gaman verður að sjá hvort að hann nái að koma ferlinum aftur á beinu brautina á nýjan leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.