13.06.15 - 14:33
Eyþór Ernir Oddsson
Kristinn Jónsson skrifar undir nýjan þriggja ára samning við Blika (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristinn Jónsson, bakvörður Breiðabliks hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Breiðabliks en samningurinn er til þriggja ára.
Kristinn er 25 ára og er einn af lykilmönnum Blika sem hafa spilað vel í sumar en hann var einnig í landsliðshópi Íslands sem sigraði Tékka í gær, 2-1, en kom þó ekkert við sögu.
Hann á að baki 30 landsleiki með unglingalandsliðum Ísland og fjóra A-landsleiki. Hann spilaði í Svíþjóð á síðasta tímabili en var mikið meiddur og sneri aftur heim í Breiðablik.
Breiðablik eiga heimaleik gegn Víkingum á morgun en Víkingar hafa verið í vandræðum með að ná í úrslit og eru með sex stig út sjö leikjum.

Heimild: Blikar.is