13.06.15 - 09:00
Arnar Geir Halldórsson
Valencia kaupir Andre Gomes frá Benfica (Staðfest)

Andre Gomes í leik gegn Atletico í vetur

Mynd: EPA

Andre Gomes í leik gegn Atletico í vetur

Mynd: EPA
Portúgalski miðjumaðurinn Andre Gomes hefur gert fimm ára samning við spænska stórliðið Valencia.
Gomes lék með Valencia í La Liga á nýafstaðinni leiktíð en var þá á láni frá Benfica. Nú hefur Valencia komist að samkomulagi við portúgalska meistaraliðið um kaup á þessum 21 árs miðjumanni.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Gomes unnið sér inn sæti í portúgalska landsliðinu. Hann spilaði 37 leiki fyrir Valencia á tímabilinu.
Gomes vakti mikla athygli í liði Benfica tímabilið 2013/2014 og var meðal annars valinn í lið ársins í Evrópudeildinni það tímabil.

Heimild: Valencia