KFS 1 - 2 Augnablik
1-0 Ásgeir Elíasson ('22, víti)
1-1 Brynjar Óli Bjarnason ('43)
1-2 Arnór Daði Gunnarsson ('82)
1-0 Ásgeir Elíasson ('22, víti)
1-1 Brynjar Óli Bjarnason ('43)
1-2 Arnór Daði Gunnarsson ('82)
Augnablik vann endurkomusigur á KFS er liðin áttust við í 3. deild karla í dag.
Leikið var í Vestmannaeyjum og komust heimamenn yfir með marki úr vítaspyrnu um miðbik fyrri hálfleiks. Ásgeir Elíasson skoraði af vítapunktinum.
Brynjar Óli Bjarnason jafnaði metin rétt fyrir leikhlé og var staðan jöfn þegar flautað var til hálfleiks, 1-1.
Staðan var jöfn alveg þangað til átta mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma, þá skoraði Arnór Daði Gunnarsson sigurmark gestana úr Kópavogi.
Lokatölur 1-2 og góð þrjú stig sem Augnablik tekur með sér heim í Herjólfi. Augnablik er í öðru sæti, tveimur stigum á eftir toppliði Hattar/Hugins. KFS er í næst neðsta sæti með þrjú stig.
Athugasemdir