Besta deildin er að fara aftur af stað eftir landsleikjahlé. Tíu umferðir eru búnar og lýkur fyrri umferð deildarkeppninnar á mánudag með leik Víkings og KR.
Wyscout heldur utan um gögn úr leikjum deildarinnar og hér má sjá hvaða markverðir hafa staðið sig best samkvæmt tölfræðinni. Hér er horft í skot á mark og vörslur.
Wyscout heldur utan um gögn úr leikjum deildarinnar og hér má sjá hvaða markverðir hafa staðið sig best samkvæmt tölfræðinni. Hér er horft í skot á mark og vörslur.
Það eru ekki allir hrifnir af xG og öllu því, en það getur samt verið gaman að rýna í tölfræðina og sjá hvað hún segir. Miðað við hana er Guy Smit, markvörður Vestra, búinn að standa sig best af markvörðum deildarinnar.
Hann hefur miðað við xG útreikninga komið í veg fyrir 3,6 mörk (e. prevented goals). Hann hefur fengið á sig sjö mörk í fyrstu tíu leikjunum en miðað við áætluð mörk ætti hann að hafa fengið tæplega ellefu mörk á sig.
Árni Snær Ólafsson hjá Stjörnunni er næstur á eftir honum, hefur komið í veg fyrir 3,31 mark. Þeir Marcel Zapytowski hjá ÍBV (2,18), Viktor Freyr Sigurðsson hjá Fram (1,81) og Frederik Schram hjá Val (0,39) eru hinir markverðirnir sem hafa spilað fleiri en tvo leiki og eru með jákvæða tölfræði þegar kemur að mörkum á sig.
Þeir Halldór Snær Georgsson hjá KR og Jökull Andrésson Afturelding eru nokkurn veginn á pari. Árni Marinó Einarsson hjá ÍA er með verstu tölfræðina, hefur fengið á sig 4,81 mark um fram þau sem hann hefði átt að fá á sig. Steinþór Már Auðunsson hjá KA er með -3,12, Anton Ari Einarsson hjá Breiðabliki er með -2,78, Stefán Þór Ágústsson sem varði mark Vals fyrir komu Frederiks er með -2,43, Mathias Rosenörn hjá FH er með -2,17 og Ingvar Jónsson hjá Víkingi er með -1,37.
Það hefur verið mest að gera hjá Halldóri Snæ hjá KR, hann hefur fengið á sig 70 skot og varið 47 þeirra. Árni Snær er næstur á eftir með 44 vörslur (62 skot) og Árni Marinó er með 40 vörslur af þeim 64 skotum sem hann hefur fengið á sitt mark.
Guy Smit og Frederik Schram eru einu markmennirnir sem hafa varið víti til þessa. Guy hefur varið eitt af þremur vítum sem hann hefur fengið á sig. Það hjálpar ekki tölfræði Jökuls Andréssonar að þrjú sem hafa verið skoruð á hann hafa komið af vítapunktinum.
Hafa staðið sig best út frá tölfræðinni:

Athugasemdir