Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 13. september 2022 18:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Vals og Breiðabliks: Sama liðið áttunda leikinn í röð
Agla María Albertsdóttir.
Agla María Albertsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pétur og Matthías halda sig við sama lið.
Pétur og Matthías halda sig við sama lið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er sannkallaður stórleikur framundan í Bestu deild kvenna í kvöld. Valur tekur á móti Breiðabliki á Hlíðarenda.

Valur getur farið langleiðina með að vinna deildina með sigri, en Breiðablik er á sama tíma að berjast um annað sætið - sem veitir þátttökurétt í Meistaradeildinni á næsta ári.

Þessi tvö lið hafa verið þau bestu á landinu síðustu árin og hafa verið að berjast um alla titla.

Lestu um leikinn: Valur 1 -  1 Breiðablik

Byrjunarliðin fyrir þennan áhugaverða leik eru klár. Valur er að stilla upp sama byrjunarliðin áttunda leikinn í röð. Valur hefur unnið alla sjö leikina hingað til með þetta byrjunarlið, en þetta þýðir að það er áfram ekkert pláss fyrir landsliðskonuna Elín Mettu Jensen.

Hjá Breiðabliki er Agla María Albertsdóttir komin aftur á fleygiferð eftir meiðsli en það eru frábær tíðindi fyrir Blika.

Flautað verður til leiks á Hlíðarenda klukkan 19:15.

Byrjunarlið Vals:
1. Sandra Sigurðardóttir (m)
4. Arna Sif Ásgrímsdóttir
5. Lára Kristín Pedersen
6. Mist Edvardsdóttir
7. Elísa Viðarsdóttir (f)
8. Ásdís Karen Halldórsdóttir
11. Anna Rakel Pétursdóttir
13. Cyera Hintzen
14. Sólveig Jóhannesdóttir Larsen
17. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
27. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir

Byrjunarlið Breiðabliks:
1. Eva Nichole Persson (m)
2. Natasha Anasi
4. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir
8. Heiðdís Lillýardóttir
9. Taylor Marie Ziemer
10. Clara Sigurðardóttir
14. Karen María Sigurgeirsdóttir
17. Karitas Tómasdóttir
25. Anna Petryk
28. Birta Georgsdóttir

Sjá einnig:
Dæmið hefur snúist við: Valur er núna með gott tak á Blikum
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner