Barcelona vill fá Kane - Wharton efstur á lista Chelsea - Endrick lánaður til Lyon
   fim 13. nóvember 2025 22:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fyrsta rauða spjald Ronaldo í portúgölsku treyjunni
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo fékk að líta rauða spjaldið í tapi Portúgals gegn Írlandi í undankeppni HM í kvöld.

Hann fékk rauða spjaldið fyrir að gefa Dara O'Shea varnarmanni írska liðsins hressilegt olnbogaskot.

Hann var að spila sinn 226. landsleik en þetta var hans fyrsta rauða spjald á landsliðsferlinum.

Írarnir höfðu mjög gaman af þessu. Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íra, sagði fyrir leikinn að Ronaldo kynni að ræða við dómarana og Ronaldo svaraði Heimi og sagði hann kláran náunga.

Þá rifust Ronaldo og Heimir þegar Ronaldo var kominn út af. Troy Parrott skoraði bæði mörk Íra í 2-0 sigri. Úrslitin þýða að liðið mætir Ungverjalandi í úrslitaleik um umspilssæti.



Athugasemdir
banner