Fotbolti.net
14.02.21 - 11:19
Ívan Guðjón Baldursson

Dayot Upamecano til Bayern (Staðfest)

Dayot Upamecano til Bayern (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Þýska stórveldið FC Bayern er búið að staðfesta kaup á franska varnarmanninum Dayot Upamecano frá einum af helstu keppinautum sínum í þýska boltanum - RB Leipzig.
Upamecano er 22 ára gamall miðvörður sem hefur verið eftirsóttur af stærstu liðum Evrópu undanfarin misseri.

Upamecano gengur í raðir Bayern næsta sumar og er búinn að skrifa undir fimm ára samning.

Bayern ákvað að nýta 42,5 milljón evra söluákvæði sem var í samningi Upamecano við Leipzig.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.