Aston Villa 1 - 3 Newcastle
1-0 Tammy Abraham ('14 )
1-1 Sandro Tonali ('63 )
1-2 Sandro Tonali ('76 )
1-3 Nick Woltemade ('88 )
Rautt spjald: Marco Bizot, Aston Villa ('45+1)
1-0 Tammy Abraham ('14 )
1-1 Sandro Tonali ('63 )
1-2 Sandro Tonali ('76 )
1-3 Nick Woltemade ('88 )
Rautt spjald: Marco Bizot, Aston Villa ('45+1)
Aston Villa tók á móti Newcastle í stórleik í enska bikarnum og náðu heimamenn forystunni snemma leiks þegar Tammy Abraham gerði mjög vel að skora eftir skemmtilega útfærslu af aukaspyrnu.
Ekkert VAR-kerfi er í þessari umferð bikarsins og kvörtuðu leikmenn Newcastle undan rangstöðu, sem var þó ekki gefin.
Heimamenn voru við stjórn í fyrri hálfleik þó að gestirnir hafi átt sínar rispur. Hlutirnir breyttust þó í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar Marco Bizot markvörður fór í skógarhlaup langt út úr vítateig og fékk að líta beint rautt spjald fyrir að brjóta á andstæðingi í skyndisókn eftir hornspyrnu á hinum endanum.
Heimsmeistarinn Emiliano Martínez kom inn af bekknum og spilaði seinni hálfleikinn en honum tókst ekki að stöðva Sandro Tonali sem skoraði tvennu. Fyrst jafnaði Ítalinn metin með skoti sem breytti um stefnu af varnarmanni, áður en hann náði forystunni með frábæru skoti af um 25 metra færi.
Tíu heimamenn réðu ekki við Newcastle og innsiglaði Nick Woltemade endurkomusigurinn á 88. mínútu, svo lokatölur urðu 1-3.
Athugasemdir



