Fotbolti.net
14.02.26 - 21:54
Ívan Guðjón Baldursson

Enski bikarinn: Liverpool skoraði þrjú gegn Brighton

Enski bikarinn: Liverpool skoraði þrjú gegn Brighton
Canon

Mynd: EPA

Liverpool 3 - 0 Brighton
1-0 Curtis Jones ('42 )
2-0 Dominik Szoboszlai ('56 )
3-0 Mohamed Salah ('68 , víti)
Englandsmeistarar Liverpool eru komnir í 16-liða úrslit enska bikarsins eftir flottan sigur á heimavelli gegn Brighton.

Brighton byrjaði leikinn betur en svo ríkti nokkuð jafnræði með liðunum þar til Curtis Jones skoraði af stuttu færi eftir hættulega fyrirgjöf frá Milos Kerkez.

Síðari hálfleikurinn hélt áfram í svipuðu fari þar sem heimamenn héldu áfram að nýta þau fáu færi sem gáfust. Dominik Szoboszlai tvöfaldaði forystuna með föstu skoti eftir frábæra stoðsendingu frá Mohamed Salah snemma í síðari hálfleik, áður en Salah gerði út um viðureignina af vítapunktinum.

Brotið var á Salah innan vítateigs og skoraði Egyptinn af feykilega miklu öryggi til að innsigla sigurinn.

Gestirnir frá Brighton gerðu sig líklega til að minnka muninn en fundu ekki leið framhjá Alisson Becker. Þá voru heimamenn einnig hættulegir og komu boltanum aftur í netið, en ekki dæmt mark vegna rangstöðu.

Lokatölur urðu því 3-0 fyrir Liverpool.
Enski bikarinn: Liverpool skoraði þrjú gegn Brighton
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.