Fotbolti.net
14.02.26 - 15:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Enski bikarinn: West Ham lenti í vandræðum með C-deildarlið

Crysencio Summerville

Crysencio Summerville

Canon

Mynd: EPA

Burton Albion 0 - 1 West Ham
0-1 Crysencio Summerville ('95 )
Rautt spjald: Freddie Potts, West Ham ('101)
West Ham lenti í vandræðum með C-deildarlið Burton þegar liðin mættust í enska bikarnum í dag.

Burton var betri aðilinn í fyrri hálfleik en West Ham setti í annan gír í seinni hálfleik en tókst ekki að koma boltanum í netið.

Það þurfti því að framlengja leikinn og þegar fimm mínútur voru liðnar af framlengingunni átti Crysencio Summerville góðan sprett og skoraði með laglegu skoti.

Stuttu síðar lenti West Ham í vandræðum þegar Freddie Potts fékk að líta rauða spjaldið. Leikmenn Burton fengu spark í rassinn eftir það og það var einstefna í átt að marki West Ham sem þeim tókst hins vegar ekki að nýta sér.

Summerville fékk tækifæri til að innsigla sigur West Ham eftir slæm mistök í vörn Burton en skot hans fór í hliðarnetið. Burton fékk tækifæri í blálokin, Kgaogelo Chauke fékk boltann inn á teignum en átti skot í hliðarnetið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.