Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
banner
   lau 14. febrúar 2026 17:43
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Endurkomusigur hjá Val - Átta mörk á Skaganum
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Valur tók á móti ÍBV í efstu deild Lengjubikars kvenna þar sem Eyjakonur náðu forystunni í fyrri hálfleik.

Milena Patru skoraði á 28. mínútu og leiddi ÍBV í leikhlé, en Anna Rakel Pétursdóttir jafnaði snemma í síðari hálfleik.

Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir tók forystuna skömmu síðar áður en Ágústa María Valtýsdóttir innsiglaði endurkomusigur. Valur er með sex stig eftir tvær fyrstu umferðirnar í Lengjubikarnum, en þetta var fyrsti leikur Eyjakvenna í keppninni í ár.

Fyrr í dag áttust ÍA og Grótta við í B-deildinni og úr varð hörkuslagur þar sem átta mörk litu dagsins ljós.

Skagakonur komust í tveggja marka forystu snemma leiks en Birna Hrólfsdóttir leiddi endurkomu Gróttu með tvennu, svo staðan var orðin 2-3 í leikhlé.

ÍA náði að snúa stöðunni aftur sér í hag í síðari hálfleik áður en Lovísa Daðadóttir Scheving gerði síðasta mark leiksins svo lokatölur urðu 4-4.

Bæði lið eiga eitt stig eftir jafnteflið en Grótta er búin að spila tvo leiki.

Valur 3 - 1 ÍBV
0-1 Milena Mihaela Patru ('28)
1-1 Anna Rakel Pétursdóttir ('56)
2-1 Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir ('61)
3-1 Ágústa María Valtýsdóttir ('84)

ÍA 4 - 4 Grótta
1-0 Anna Þóra Hannesdóttir ('4)
2-0 Madison Brooke Schwartzenberger ('12)
2-1 Birna Hrólfsdóttir ('22)
2-2 Birna Hrólfsdóttir ('35)
2-3 Thelma Björg Gunnarsdóttir ('42)
3-3 Nadía Steinunn Elíasdóttir ('54)
4-3 Sigrún Eva Sigurðardóttir ('60)
4-4 Lovísa Davíðsdóttir Scheving ('67)
Athugasemdir
banner
banner