Keflavík 1 - 0 Selfoss
1-0 Eva Dís Sighvatsdóttir ('29)
1-0 Eva Dís Sighvatsdóttir ('29)
Eva Dís Sighvatsdóttir skoraði eina mark leiksins er Keflavík tók á móti Selfossi í B-deild Lengjubikars kvenna.
Eva Dís skoraði á 29. mínútu og tryggði Keflavík þannig sigur í fyrsta leik sínum í keppninni á árinu.
Eva er fædd 2011 og því aðeins á fimmtánda aldursári. Tvær fæddar 2011 voru í byrjunarliði Keflavíkur en meðalaldur í byrjunarliði Selfyssinga var þó lægri.
Selfoss er án stiga eftir stórt tap gegn HK í fyrstu umferð.
Athugasemdir


