Tveimur síðustu leikjum dagsins er lokið í A-deild kvenna í Lengjubikarnum þar sem Þróttur R. og Grindavík/Njarðvík unnu sannfærandi sigra á heimavelli.
Þróttur tók á móti Þór/KA og komst í þriggja marka forystu áður en gestirnir frá Akureyri minnkuðu muninn, svo lokatölur urðu 3-1.
Unnur Dóra Bergsdóttir skoraði eina markið í fyrri hálfleik og gerðu Madison Ditta og Þórdís Elva Ágústsdóttir út um viðureignina í upphafi síðari hálfleiks. Bríet Fjóla Bjarnadóttir skoraði fánamark Akureyringa seint í leiknum.
Þetta var fyrsti leikur Þróttar en Þór/KA er án stiga eftir að hafa einnig tapað í fyrstu umferð.
Grindavík/Njarðvík gerði sér þá lítið fyrir og skoraði fimm mörk gegn FHL. Grindavík/Njarðvík er búið að hirða sæti FHL í Bestu deild kvenna og í dag sýndu Suðurnesingar yfirburði í innbyrðisviðureign liðanna.
Ása Björg Einarsdóttir skoraði tvennu og setti Sigríður Emma F. Jónsdóttir þrennu í 5-1 sigri í Nettóhöllinni.
Þróttur R. 3 - 1 Þór/KA
1-0 Unnur Dóra Bergsdóttir ('33)
2-0 Madison Jeanne Ditta ('51)
3-0 Þórdís Elva Ágústsdóttir ('53)
3-1 Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('81)
Grindavík/Njarðvík 5 - 1 FHL
1-0 Ása Björg Einarsdóttir ('3)
2-0 Sigríður Emma F. Jónsdóttir ('14)
2-1 Christa Björg Andrésdóttir ('53)
3-1 Sigríður Emma F. Jónsdóttir ('77)
4-1 Ása Björg Einarsdóttir ('82)
5-1 Sigríður Emma F. Jónsdóttir ('86)
Athugasemdir


