Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
   lau 14. febrúar 2026 17:29
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Sex marka jafntefli í Vesturbæ - Þægilegt fyrir Fylki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var mikil spenna í A-deild Lengjubikars karla í dag þar sem KR tók á móti ÍR í Vesturbænum og létu mörkin ekki standa á sér.

Arnór Ingvi Traustason var í fyrsta sinn í byrjunarliði KR eftir að hafa komið frá Norrköping í vetur. Hann lék fyrri hálfleikinn í dag.

Stefán Þór Pálsson tók forystuna fyrir ÍR strax á fjórðu mínútu en Eiður Gauti Sæbjörnsson var fljótur að svara. Orri Bjarkason kom ÍR-ingum svo aftur yfir áður en Stefán Þór tvöfaldaði forystuna á 22. mínútu, svo staðan var orðin 1-3.

Eiður Gauti svaraði með öðru marki sínu og leiddu gestirnir allt þar til í síðari hálfleik þegar Luke Rae gerði jöfnunarmark. Meira var ekki skorað og urðu lokatölur 3-3, KR er með sjö stig eftir þrjár umferðir á meðan ÍR er með fjögur stig.

Í Breiðholtinu átti Leiknir heimaleik við Fylki þar sem staðan var markalaus í leikhlé en gestirnir skoruðu þrjú eftir að leikurinn var flautaður aftur á.

Guðfinnur Þór Leósson, hinn ungi Magnús Daði Ottesen (2010) og Guðmundur Tyrfingsson skoruðu mörkin í síðari hálfleik til að innsigla þriggja marka sigur.

Fylkir er með sex stig eftir tvær umferðir og situr Leiknir á botninum án stiga eftir þrjár umferðir.

KR 3 - 3 ÍR
0-1 Stefán Þór Pálsson ('4)
1-1 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('6)
1-2 Orri Bjarkason ('13)
1-3 Stefán Þór Pálsson ('22)
2-3 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('28)
3-3 Luke Morgan Conrad Rae ('71)

Leiknir R. 0 - 3 Fylkir
0-1 Guðfinnur Þór Leósson ('50)
0-2 Magnús Daði Ottesen ('74)
0-3 Guðmundur Tyrfingsson ('88)
Athugasemdir
banner