Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
   lau 14. febrúar 2026 20:34
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Stórsigrar í neðri deildum
Mynd: Víkingur Ólafsvík
Síðustu leikjum dagsins er lokið í B- og C-deildum Lengjubikarsins. KFA og Víkingur Ólafsvík unnu stórsigra í B-deild.

KFA rúllaði yfir Hött í nágrannaslag þar sem heimamenn skiptu mörkunum bróðurlega á milli sín í Fjarðabyggðarhöllinni og urðu lokatölur 5-2.

Víkingur Ólafsvík valtaði þá yfir Árbæ á Domusnovavellinum. Asmer Begic var atkvæðamestur með tvennu, lokatölur 1-5.

Í C-deildinni skoraði Árborg átta mörk í stórsigri gegn Afríku. Andrés Karl Guðjónsson setti þar þrennu.

Að lokum vann Smári endurkomusigur á Hömrunum eftir að hafa lent undir í tvígang. Hamrarnir leiddu í hálfleik en heimamenn tóku yfir eftir leikhléð.

KFA 5 - 2 Höttur
1-0 Matheus Bissi Da Silva ('5)
2-0 Geir Sigurbjörn Ómarsson ('50)
3-0 Patrekur Aron Grétarsson ('58)
4-0 Ólafur Bernharð Hallgrímsson ('59)
4-1 Hrafn Sigurðsson ('60)
4-2 Eyþór Atli Árnason ('84)
5-2 Marteinn Már Sverrisson ('93)

Árbær 1 - 5 Víkingur Ó.
0-1 Jackson Cole Vanderven ('30)
0-2 Asmer Begic ('59)
0-3 Asmer Begic ('66)
0-4 Abdelhadi Khalok El Bouzarrari ('68)
0-5 Ingvar Freyr Þorsteinsson ('70)
1-5 Jordan Chase Tyler ('82)

Árborg 8 - 0 Afríka
1-0 Kristinn Sölvi Sigurgeirsson ('4)
2-0 Freyr Héðinsson ('34)
3-0 Andrés Karl Guðjónsson ('36)
4-0 Andrés Karl Guðjónsson ('41)
5-0 Aron Ingi Þorkelsson ('43)
6-0 Andrés Karl Guðjónsson ('53)
7-0 Aron Freyr Margeirsson ('59)
8-0 Gunnar Hrafn Birgisson ('64)

Smári 4 - 2 Hamrarnir
0-1 Gunnar Þórir Björnsson ('2)
1-1 Alexander Fannberg Gunnarsson ('3)
1-2 Guðmundur Kristinn Jónasson ('25)
2-2 Gunnar Breki Myrdal Gunnarsson ('64)
3-2 Hilmir Vilberg Arnarsson ('86)
4-2 Reynir Thelmuson ('94)
Athugasemdir
banner
banner