Þór 3 - 1 Grótta
1-0 Atli Sigurjónsson ('9)
2-0 Ibrahima Balde ('45+3)
2-0 Christian Jakobsen, misnotað víti ('49)
3-0 Ágúst Eðvald Hlynsson ('71, víti)
3-1 Grímur Ingi Jakobsson ('91)
Rautt spjald: Hrannar Ingi Magnússon, Grótta ('47)
1-0 Atli Sigurjónsson ('9)
2-0 Ibrahima Balde ('45+3)
2-0 Christian Jakobsen, misnotað víti ('49)
3-0 Ágúst Eðvald Hlynsson ('71, víti)
3-1 Grímur Ingi Jakobsson ('91)
Rautt spjald: Hrannar Ingi Magnússon, Grótta ('47)
Þór tók á móti Gróttu í kvöldleik Lengjubikarsins og náði forystunni snemma leiks þegar Atli Sigurjónsson skoraði beint úr hornspyrnu. Atli skoraði þar með sitt fyrsta mark fyrir Þór eftir heimkomu frá Reykjavík.
Eftir um hálftíma af leiknum þurfti sjúkrabíll að sækja Einar Tómas Sveinbjarnarson eftir að hann virtist slasast alvarlega í návígi við andstæðing. Leikurinn var stöðvaður í tæpar 20 mínútur en hélt svo áfram.
Ibrahima Balde tvöfaldaði forystu Þórsara í uppbótartíma fyrri hálfleiks og versnaði staða Seltirninga í upphafi síðari hálfleiks. Hrannar Ingi Magnússon, sem hafði komið inn af bekknum fyrir Einar Tómas, varði boltann þá með hendi eftir að Balde lyfti honum yfir markvörð Gróttu. Réttilega var dæmd vítaspyrna og rautt spjald, en Christian Jakobsen skaut í slá svo staðan hélst óbreytt.
Heimamenn fengu aðra vítaspyrnu síðar í leiknum og í þetta skiptið steig Ágúst Eðvald Hlynsson á vítapunktinn og skoraði.
Tíu leikmenn Gróttu náðu að minnka muninn í uppbótartímanum með föstu skoti rétt fyrir utan vítateigslínuna. Grímur Ingi Jakobsson var þar á ferðinni og urðu lokatölur 3-1.
Þór er með fjögur stig eftir tvær umferðir í Lengjubikarnum en Grótta situr sem fastast í botnsæti riðilsins, án stiga eftir fjóra tapleiki í röð. Þór vann Lengjudeildina í fyrra og verður í Bestu deildinni í sumar. Grótta endaði í 2. sæti 2. deildar og verður í Lengjudeildinni í sumar.
Athugasemdir




