Cristiano Ronaldo er mættur aftur til leiks eftir stutt verkfall þar sem mótmælti því hversu lítið er fjárfest í sádi-arabíska stórveldinu Al-Nassr sem hann leikur fyrir.
Ronaldo, sem er nýbúinn að eiga 41 árs afmæli, var í byrjunarliðinu og skoraði eftir 18 mínútna leik eftir undirbúning frá Sadio Mané.
Leikurinn var nokkuð jafn en Al-Nassr tókst að innsigla sigurinn í síðari hálfleik. Kingsley Coman lagði þá upp fyrir Ayman Yahya svo lokatölur urðu 0-2.
Al-Nassr er á blússandi siglingu og var þetta áttundi sigur liðsins í röð í öllum keppnum. Ronaldo og félagar sitja í öðru sæti sádi-arabísku deildarinnar með 52 stig eftir 21 umferð, einu stigi á eftir toppliði Al-Hilal.
Al-Riyadh og Al-Khaleej skildu þá jöfn fyrr í dag. Þar var Joshua King í byrjunarliði Al-Khaleej ásamt Grikkjunum Kostas Fortounis og Georgios Masouras.
Að lokum hafði Al-Najma betur gegn Al-Kholood í neðri hlutanum. Botnlið Al-Najma vann þar með sinn fyrsta leik á deildartímabilinu.
Al-Fateh 0 - 2 Al-Nassr
0-1 Cristiano Ronaldo ('18)
0-2 Ayman Yahya ('78)
Al-Riyadh 1 - 1 Al-Khaleej
Al-Najma 2 - 1 Al-Kholood
???????????? Cristiano Ronaldo scores his career goal number 962 as soon as he returns in Al Nassr squad.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) February 14, 2026
The first one since turning 41. ????@Rtiban1 ???? pic.twitter.com/PoJuyGeiAJ
Athugasemdir


