Ronaldo verður með í dag


Mynd: EPA


Mynd: Al Nassr


Mynd: EPA
Portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo hefur ákveðið að hætta verkfalli sínu eftir að hafa misst af síðustu þremur leikjum liðsins.
Ronaldo, sem leikur með stórveldi Al-Nassr, er ósáttur útaf því að honum líður eins og félagið sé ekki að fá nægilega góða leikmenn til liðs við sig miðað við helstu keppinautana í Sádi-Arabíu.
Stuðningsmenn Al-Nassr sýndu Ronaldo stuðning í miðju verkfalli og var búist við að hann myndi mæta til leiks gegn Arkadag á miðvikudaginn en hann var ekki í hóp.

Sky Sports og Fabrizio Romano greina nú frá því að Ronaldo verður með í næsta leik Al-Nassr á útivelli gegn Al-Fateh sem fer fram í dag.
Ronaldo er búinn að skora 17 mörk og gefa eina stoðsendingu í 18 deildarleikjum á tímabilinu. Al-Nassr er í þriðja sæti með 49 stig eftir 20 umferðir, fjórum stigum á eftir toppliði Al-Hilal og með leik til góða.

Stuðningsmenn Al-Nassr sýndu Ronaldo stuðning í miðju verkfalli og var búist við að hann myndi mæta til leiks gegn Arkadag á miðvikudaginn en hann var ekki í hóp.

TENGT EFNI
Áhorfendur sýndu Ronaldo stuðning
Sky Sports og Fabrizio Romano greina nú frá því að Ronaldo verður með í næsta leik Al-Nassr á útivelli gegn Al-Fateh sem fer fram í dag.
Ronaldo er búinn að skora 17 mörk og gefa eina stoðsendingu í 18 deildarleikjum á tímabilinu. Al-Nassr er í þriðja sæti með 49 stig eftir 20 umferðir, fjórum stigum á eftir toppliði Al-Hilal og með leik til góða.

TENGT EFNI
Verkfalli Ronaldo lokið
???????? Cristiano Ronaldo travels with Al Nassr squad ahead of tomorrow’s game vs Al Fateh in Saudi Pro League.@Rtiban1 ???? pic.twitter.com/xqH5GJvWRl
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) February 13, 2026


Mynd: Al Nassr





