Arne Slot þjálfari Liverpool svaraði spurningum á fréttamannafundi í gær fyrir spennandi slag gegn Brighton í enska bikarnum sem fer fram í kvöld.
Slot ræddi meðal annars um miðvörðinn Ibrahima Konaté sem á innan við sex mánuði eftir af samningi við Liverpool og má því ræða við erlend félög um samningsmál.
Real Madrid hefur verið nefnt til sögunnar sem áhugasamt en Liverpool vill halda leikmanninum.
„Við erum í viðræðum við Ibou Konaté um nýjan samning, það ætti að segja ykkur hvað við viljum," sagði Slot.
„Það er augljóst að við viljum halda honum, viðræðurnar eru í gangi. Ég veit ekki hvernig þetta endar, en við værum ekki í viðræðum við hann ef við vildum ekki hafa hann áfram í liðinu!"
Athugasemdir



