Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Systirin skrifaði líka undir hjá Chelsea (Staðfest)
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Reece James, fyrirliði karlaliðs Chelsea, skrifaði undir nýjan samning í gær sem gildir til sumarsins 2032.

James er gríðarlega öflugur fótboltamaður en ferill hans hefur litast af meiðslum. Svipaða sögu er hægt að segja af systur hans Lauren James sem skein skært með Chelsea fyrir tveimur árum en hefur síðan þá misst af mörgum leikjum vegna þrálátra meiðsla.

Chelsea tilkynnti nýjan samning við Reece James í gær og nokkru síðar tilkynnti félagið einnig nýjan samning við litlu systur.

Nýr samningur Lauren James gildir til sumarsins 2030, en hún átti aðeins rétt rúmt ár eftir af gamla samningnum.

James er 24 ára gömul og leikur sem kantmaður að upplagi en hún er, líkt og stóri bróðir, afar fjölhæf og getur leikið í öllum stöðum í sóknarlínunni.

Hún á 9 mörk í 36 landsleikjum fyrir England á meðan stóri bróðir hennar hefur aðeins spilað 22 landsleiki vegna stöðugra meiðslavandræða og mikillar samkeppni í sömu stöðu.

   13.03.2026 11:49
Fyrirliðinn hjá Chelsea til 2032 (Staðfest)

Athugasemdir
banner