Reece James hefur skrifað undir nýjan sex ára samning við Chelea. Hann er nú samningsbundinn félaginu fram á sumarið 2032.
James, sem er fyrirliði Chelsea, er 26 ára og var áður samningsbundinn til 2028. Hann kom inn í akademíu Chelsea árið 2006 og hefur því alla sína fótboltatíð verið hjá félaginu.
James er í grunninn hægri bakvörður en hann hefur talsvert spilað sem djúpur miðjumaður á þessu tímabili. Hann er lykilmaður í liðinu og sem betur fer fyrir Chelsea hefur hann náð að halda sér þokkalega heilum á þessu tímabili eftir nokkur erfið tímabil meiðslalega á undan.

James á 22 landsleiki og eru taldar líkur á því að hann verði í byrjunarliði Englands á HM í sumar.
Made in Cobham. Here to stay. pic.twitter.com/0u0TqljnVC
— Chelsea FC (@ChelseaFC) March 13, 2026
Athugasemdir