Englendingurinn Max Dowman sá ekki bara um að ná í öll stigin fyrir Arsenal í 2-0 sigrinum á Everton á Emirates-leikvanginum heldur skrifaði hann einnig nafn sitt í sögubækurnar með marki sínu undir lok leiks.
Enginn efast um hæfileika Dowman en það þótti hins vegar mjög hugrökk ákvörðun hjá Mikel Arteta að setja hann inn á fyrir Martin Zubimendi í síðari hálfleiknum.
Arteta vildi fá meira fram á við og það er nákvæmlega það sem hann fékk frá hinum 16 ára Dowman.
Dowman átti fyrirgjöfina sem bjó til fyrra mark Arsenal undir lok venjulegs leiktíma og þá skoraði hann annað markið eftir frábært einstaklingsframtak.
Það gerði Dowman að yngsta markaskorara í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og tók hann þar með 21 árs gamalt met af James Vaughan sem skoraði fyrir Everton þegar hann var 16 ára og 270 daga gamall.
Dowman er aðeins 16 ára og 73 daga gamall og sló hann því metið nokkuð örugglega. Framtíðarstjarna Englendinga.
16 - At 16 years and 73 days, Max Dowman has become the youngest scorer in Premier League history. Future. pic.twitter.com/71VkKePZkU
— OptaJoe (@OptaJoe) March 14, 2026
Athugasemdir




