Fotbolti.net
14.05.15 - 16:02
Elvar Geir Magnússon

Bjössi Hreiðars tekur fram skóna (Staðfest)

Skiptir í 4. deildarlið KH

Bjössi Hreiðars.

Bjössi Hreiðars.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

4. deildarliðið KH fékk í dag góðan liðsstyrk þegar Sigurbjörn Hreiðarsson skrifaði undir félagaskipti í Hlíðarendafélagið.

KH er einskonar varalið Vals en Sigurbjörn er aðstoðarþjálfari Valsmanna eins og flestir vita.
Hann verður fertugur síðar á þessu ári en er í fantaformi og á að baki rúmlega tuttugu ára feril í meistaraflokki.

Af heimasíðu KH:
Sigurbjörn hefur leikið 332 deildar- og bikarleiki á ferlinum og hefur þanið netmöskvana 51 sinnum. Sigurbjörn lék alla tíð með Val fyrir utan stutta dvöl með sænska liðinu Trelleborg og síðustu þrjú keppnistímabil sem hann lék með Haukum.

KH býður Sigurbjörn hjartanlega velkominn í raðir KH.

Heimild: Heimasíða KH

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.