14.05.15 - 16:55
Elvar Geir Magnússon
Bróðursonur David Moyes í KR (Staðfest)

David Moyes.

Mynd: Getty Images

David Moyes.

Mynd: Getty Images
KR hefur fengið miðjumanninn Harvey Moyes í sínar raðir en hann er bróðursonur David Moyes þjálfara Real Sociedad.
Harvey er fæddur árið 1996 og er því ennþá gjaldgengur í 2. flokk.
Harvey er fæddur árið 1996 og er því ennþá gjaldgengur í 2. flokk.
Harvey var á reynslu hjá KR þegar liðið var í æfingabúðum á Spáni fyrir mót og hann hefur nú fengið félagaskipti.
Harvey hefur verið í unglingaliði Carlisle undanfarin tvö ár en hann hefur einnig leikið með yngri landsliðum Norður-Írlands.
Harvey hefur verið í unglingaliði Carlisle undanfarin tvö ár en hann hefur einnig leikið með yngri landsliðum Norður-Írlands.

Harvey Moyes þegar hann skrifaði undir hjá Carlisle.

Mynd: Twitter
