Fotbolti.net
14.05.15 - 17:23
Elvar Geir Magnússon

Nathan í Chelsea (Staðfest)

Nathan í leik með Atletico Paranaense.

Nathan í leik með Atletico Paranaense.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea hefur krækt í brasilíska miðjumanninn Nathan frá Atletico Paranaense. Fullu nafni heitir þessi 19 ára strákur Nathan Allan de Souzahas.

Hann hefur leikið fyrir yngri landslið Brasilíu og skoraði fimm mörk í fimm leikjum á HM U17 landsliða 2013 og var valinn í úrvalslið mótsins.
„Ég er gríðarlega ánægður með að vera að ganga í raðir Englandsmeistarana. Ég vonast til að læra mikið og þróa minn leik,\" segir Nathan sem kemur inn í hóp Chelsea í sumar.

Hjá Chelsea hittir hann landa sína Ramires, Willian, Oscar og Filipe Luis.

Á heimasíðu Chelsea er Nathan lýst sem snöggum sóknarmiðjumanni sem hefur gott auga fyrir mörkum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.