14.05.15 - 19:30
Daníel Freyr Jónsson
Roma kaupir Leandro Paredes (Staðfest)

Leandro Paredes.

Mynd: Getty Images

Leandro Paredes.

Mynd: Getty Images
Ítalska stórliðið AS Roma hefur gengið frá kaupum á hinum efnilega Leandro Paredes frá Boca Juniors.
Kaupverðið nemur 4,5 milljónum evra, en Paredes hefur leikið með Roma sem lánsmaður á yfirstandandi leiktíð.
Paredes kom til Roma síðasta sumar á árslöngum lánssamingi sem gaf félaginu forgangsrétt á að kaupa hann.

Þessi tvítugi miðjumaður hefur komið við sögu í 12 leikjum í öllum keppnum og skorað í þeim eitt mark. Frammistaðan í þessum leikjum hefur heillað stjórann Rudy Garcia sem ákvað að kaupa hann.