Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. maí 2022 13:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Staðfestir að Lewandowski vill fara
Robert Lewandowski.
Robert Lewandowski.
Mynd: EPA
Robert Lewandowski vill fara frá þýska stórveldinu Bayern München og róa á önnur mið fyrir næsta tímabil.

Hann á eitt ár eftir af samningi sínum og ætlar hann ekki að endurnýja þann samning.

Hasan Salihamidzic, yfirmaður fótboltamála hjá Bayern, staðfestir að leikmaðurinn vilji komast frá félaginu og prófa eitthvað nýtt. Pólski sóknarmaðurinn hefur leikið með Bayern frá 2014 og skorað 237 mörk í 252 leikjum.

Hann hefur verið sterklega orðaður við Barcelona undanfarna daga og er það líklegasti áfangastaðurinn ef Bayern ákveður að leyfa honum að fara í sumar.

Lewandowski hefur verið einn besti leikmaður heims síðustu 2-3 árin, ef ekki sá besti.
Athugasemdir
banner
banner
banner