Fotbolti.net
14.06.15 - 11:40
Arnar Geir Halldórsson

Roman Burki til Dortmund (Staðfest)

Nýjasti liðsmaður Dortmund

Nýjasti liðsmaður Dortmund

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Borussia Dortmund hefur fest kaup á svissneska markmanninum Roman Burki frá Freiburg.
Þessi 24 ára gamli markmaður gekk í raðir Freiburg frá Grasshopper síðasta sumar og vakti athygli fyrir frammistöðu sína í Bundesligunni í vetur. Hann lék sína fyrstu landsleiki fyrir Sviss á árinu.

Hann mun veita hinum 34 ára gamla Roman Weidenfeller samkeppni á næsta tímabili en Weidenfeller var gagnrýndur fyrir frammistöðu sína á síðasta tímabili.

Burki er þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við Dortmund í sumar en áður hafði liðið fjárfest í þeim Gonzalo Castro og Julian Weigl.

Jurgen Klopp hætti störfum eftir tímabilið eins og flestir vita og tók Thomas Tuchel við stjórnartaumunum á Signal Iduna Park.

Heimild: Borussia Dortmund

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.