Faðir Son Heung-min vill meina að sonur sinn sé ekki heimsklassa fótboltamaður.
Son átti stórkostlegt tímabil með Tottenham og endaði sem markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar ásamt Mohamed Salah úr Liverpool.
Son Woong-jung, faðir framherjans, segir þó að sonur sinni megi ekki vera sáttur.
„Hann verður að vinna meira og ná meiri árangri," sagði faðir Son, sem lék sjálfur fótbolta á sínum yngri árum. „Ég vil alltaf að hann geri tíu prósent betur."
Svo virðist sem faðirinn sé ekkert sérlega ánægður með að Son sé í Tottenham.
„Hann verður að spila stórt hlutverk í einu stærsta félagi heims. Þá verður hann í heimsklassa."
Tottenham verður í Meistaradeildinni á næstu leiktíð, en félagið hefur ekki unnið titil síðan 2008 þegar deildabikarinn kom í hús.
Athugasemdir