Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 14. júní 2022 10:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nunez mættur til Liverpool
Mynd: EPA
Darwin Nunez, leikmaður Benfica, er við það að ganga í raðir enska félagsins Liverpool.

Úrúgvæinn er lentur í Liverpool og einungis á eftir að tilkynna hann formlega sem nýjan leikmann félagsins.

Liverpool mun greiða Benfica 64 milljónir punda fyrir leikmanninn en verðmiðinn getur hækkað upp í 85 milljónir punda.

Nunez er 22 ára og skoraði 34 mörk í 41 leik fyrir Benfica á síðasta tímabili.


Athugasemdir
banner
banner
banner