Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 14. ágúst 2022 09:45
Fótbolti.net
Jóhann Ingi dæmir toppslag Breiðabliks og Víkings
Jóhann Ingi með gula spjaldið á lofti.
Jóhann Ingi með gula spjaldið á lofti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tvö efstu lið Bestu deildarinnar mætast annað kvöld þegar Breiðablik tekur á móti Víkingi á Kópavogsvelli.

Jóhann Ingi Jónsson, sem Fótbolti.net valdi sem besta dómara ársins á síðasta tímabili, mun dæma leikinn. Gylfi Már Sigurðsson og Andri Vigfússon eru aðstoðardómarar og Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson fjórði dómari. Eftirlitsmaður er Kristinn Jakobsson.

17. umferðin hefst í dag með þremur leikjum og þrír leikir verða á dagskrá morgun. Hér að neðan má sjá hverjir dæma leikina sem framundan eru.

sunnudagur 14. ágúst
16:00 ÍBV-FH (Vilhjálmur Alvar Þórarinsson)
16:00 KA-ÍA (Pétur Guðmundsson)
19:15 Valur-Stjarnan (Helgi Mikael Jónasson)

mánudagur 15. ágúst
18:00 Keflavík-KR (Erlendur Eiríksson)
19:15 Fram-Leiknir R. (Egill Arnar Sigurþórsson)
19:15 Breiðablik-Víkingur R. (Jóhann Ingi Jónsson)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner