Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   sun 14. september 2025 21:17
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deildin: Stjarnan sigraði á Hlíðarenda
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 1 - 2 Stjarnan
0-1 Andri Rúnar Bjarnason ('12)
1-1 Lúkas Logi Heimisson ('17)
1-2 Örvar Eggertsson ('33)
Rautt spjald: Samúel Kári Friðjónsson, Stjarnan ('90)

Lestu um leikinn: Valur 1 -  2 Stjarnan

Stjarnan heimsótti Val í toppbaráttu Bestu deildarinnar í kvöld og úr varð hörkuslagur þar sem gestirnir úr Garðabænum byrjuðu betur.

Fyrsta markið kom strax á tólftu mínútu þegar Andri Rúnar Bjarnason skoraði beint úr aukaspyrnu. Hann spyrnti boltanum í auðveldlega í gegnum vegginn þar sem Birkir Heimisson gleymdi að hoppa.

Það var einmitt Birkir sem gerðist sekur um brotið sem gaf Garðbæingum aukaspyrnuna. Guðmundur Kristjánsson gerði vel að vinna boltann á miðjum vellinum og keyra alla leið upp að D-boganum þar sem Birkir braut loks á honum.

Lúkas Logi Heimisson svaraði fimm mínútum síðar fyrir heimamenn þegar hann fékk boltann við vítateigslínuna og setti hann í samskeytin. Þetta mark kom gegn gangi leiksins.

Stjarnan var áfram sterkari aðilinn á Hlíðarenda og tók forystuna á ný þegar Örvar Eggertsson skoraði eftir arfaslakan varnarleik Valsmanna. Örvar skoraði af stuttu færi eftir sendingu frá Benedikt Warén en varnarmenn Vals settu enga pressu á boltann og dekkuðu ekki leikmenn Stjörnunnar nægilega vel.

Staðan var 1-2 í leikhlé og var seinni hálfleikurinn talsvert rólegri. Bæði lið fengu fín færi til að bæta mörkum við leikinn en tókst ekki að skora.

Það var á lokamínútunum sem Samúel Kári Friðjónsson fékk seinna gula spjaldið sitt fyrir heimskulegt brot en tíu Stjörnumönnum tókst að halda út gegn Val. Lokatölur urðu því 1-2 fyrir Stjörnuna sem jafnar Val á stigum í öðru sæti deildarinnar.

Þetta var fimmti sigurinn í röð hjá Stjörnunni sem er núna með 40 stig eftir 22 umferðir, alveg eins og Valur.

Liðin eru tveimur stigum á eftir toppliði Víkings R. sem slátraði KR fyrr í dag.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
Athugasemdir
banner